Á morgun kl. 11 verður mæðradeginum fagnað í Landakirkju sem einnig er messudagur Oddfellow-systra.
Guðsþjónustan litast eðlilega af tilefninu og verða allir sálmar eftir konur og Oddfellow-systur lesa ritningarlestra.
Sr. Viðar þjónar fyrir altari og prédikar og Kór Landakirkju verður á sínum stað ásamt Kitty.

