Erpur Snær Hansen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, segir lundann í Vestmannaeyjum vera seinna á ferð en hann hefur verið í áratugi.
Þetta kemur fram á mbl.is nú í morgun. Þar er haft eftir Erpi Snæ að lundinn sé óvenjulega seinn í Eyjum og einkennilega lítið af fugli uppi, eitthvað sem menn hafa ekki séð í áratugi. „Hvað það þýðir veit ég ekki,“ segir Erpur í samtali við Morgunblaðið. „Ég var hræddur um að það væri komin fuglaflensa, hún er orðin mjög slæm hjá súlunni. Við greindum tvo lunda um daginn sem fundust dauðir en þeir voru ekki með fuglaflensu.“
Erpur segir að ekki hafi rekið á land mikið magn af dauðum lundum en nóg sé af síli og ættu fuglanir því að hafa nóg fæði. Hann vonast til þess að fuglaflensan sé á undanhaldi. Erpur segist mikið spurður hvað þetta þýði fyrir veiðar á lundanum.
Erpur mælir með hófsamri veiði samhliða sölubanni. Nánar má lesa um málið hér.
Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson

