14.08.2020
Komin er í loftið flott heimasíða sem mun halda utan um pysjueftirlit, lundi.is einnig er mikill fróðleikur inn á síðunni um Lundan. Og þær ljósmyndir sem hafa verið teknar af börnum og þeim sem komið hafa með pysjur undanfarin ár.
Einnig er að finna skráningarblað þar sem hægt er að setja inn fjölda pysja, þyngd, fundarstaði og nöfn þeirra sem þær finna.
Og til fróðleiks:
Í seinnihluta ágúst og byrjun september fer pysjan, ungi lundans, að hugsa sér til hreyfings eftir að hafa verið í góðu yfirlæti í lundaholu foreldra sinna frá því hún klaktist úr egginu. Kvöld eitt yfirgefur hún holuna fyrir fullt og allt, tekur flugið og stefnir á haf út.
Flestar lenda pysjurnar á sjónum en allmargar fljúga þó að ljósunum í bænum og lenda á götum, gangstéttum eða í húsagörðum í Vestmannaeyjabæ.
En pysjurnar eiga sér góða bandamenn í bænum. Hvarvetna eru hjálpfúsar hendur barna sem fara um bæinn á þessum árstíma með pappakassa og safna saman þeim pysjum sem villst hafa af réttri leið. Um nóttina fá pysjurnar gistingu í mannheimum. En næsta dag er farið með þær í pysjueftirlitið og síðan niður að sjó og þeim gefið frelsi.
Frá því elstu menn muna hafa börn í Vestmannaeyjum bjargað lundapysjum. Fór björgunin fram með sama sniði og nú er, nema að þá voru allir fótgangandi. Þá var helsti sleppistaðurinn við gamla Þurrkhúsið, sem nú er farið undir hraun.