Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur árlega hausttónleika sína í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut á laugardaginn, 7. nóvember, kl. 16:00. Allir eru velkomnir og kostar 2.500 kr. inn.
Hátt í 40 hljóðfæraleikarar stíga á svið og efnisskráin er fjölbreytt. Að venju hljóma lög Oddgeirs Kristjánssonar og Sousa-mars, en þeir liðir eru fastir á tónleikum sveitarinnar.
Gestir fá einnig að heyra syrpu þjóðhátíðarlaga sem útsett var sérstaklega fyrir landsmót lúðrasveita, sem haldið var í Eyjum í september. Auk þess verður á dagskránni brot af því besta úr ýmsum áttum.
Lúðrasveitin hvetur Eyjamenn til að fjölmenna og eiga saman notalega stund með góðri tónlist í Hvítasunnukirkjunni.

