Miðvikudagur 18. nóvember 2026

Lubbi alls staðar – þvert á aldursstig

Föstudaginn 16. september síðastliðinn fóru tveir kennarar frá Kirkjugerði, þær Ása og Salmína, með fyrirlestur á Lubbanámskeiði í Reykjavík. Lubbi er hundur sem flestöll börn þekkja og hefur búið á Kirkjugerði síðustu ár. Við fengum þær til að segja okkur aðeins frá Lubba og fyrirlestrinum

En hver er Lubbi? 

Lubbi er námsefni sem var þróað af talmeinafræðingunum Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur. Lubbi er íslenskur fjárhundur.  Hann er duglegur að gelta og þá heyrist „voff – voff“. En honum langar mikið að læra að tala.  Til þess þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Best finnst Lubba að naga bein og því eru öll málhljóðin sett á bein. En hann þarf aðstoð við að finna málbeinin og æfa þau. Hvert málhljóð á sér lit, sem segir okkur hvernig hljóð það er, og tákn.  Markmið leikskólans og barnanna er að hjálpa Lubba að læra málhljóðin og æfa þau með honum.  Lubbi er námsefni sem er nýtt á flestum leikskólum landsins. Því er mikill heiður og viðurkenning fyrir leikskólann Kirkjugerði að vera valin úr stórum hóp til að sýna hvað við erum búin að vera að gera.  

Yfirskrift námskeiðsins var Lubbi fyrir allan aldur og úr varð að fyrirlestur Ásu og Salmínu fékk nafnið „Lubbi alls staðar – þvert á aldursstig“.  Að námskeiði loknu fengu Ása og Salmína mjög jákvæð viðbrögð, bæði frá þátttakendum í námskeiðinu og síðar frá þeim Eyrúnu Ísfold og Þóru, sem voru mjög ánægðar að sjá allan þann efnivið sem starfsfólk Kirkjugerðis hefur þróað í tengslum við námsefnið. Þá þótti þeim gaman að sjá hversu markvisst Lubbi er notaður í starfinu og hversu óhrædd við erum að nýta hann á öllum stigum leikskólans.  

En hvernig erum við að nýta Lubba í starfinu? 

Lubbi er sjáanlegur alls staðar í leikskólanum og fylgir okkur um allt, hvort sem það er innan leikskólans eða í vettvangsferðum.  Frá því að börnin mæta og þar til þau fara heim, þá erum við meðvitað og ómeðvitað að vinna með Lubba. Lubbi er á öllum deildum og út um allt, Lubbi hjálpar til í sérkennslunni og æfir sig með börnunum þar. Hann segir okkur hvernig veðrið er, hvaða föt eru best fyrir útiveruna þann dag, hvenær við eigum afmæli, hvar sætið okkar er, hvar hólfið okkar er o.s.frv. Við gefum Lubba bein með málhljóðinu okkar þegar við mætum í leikskólann og stimplum okkur þannig inn. Við erum með þjóna á hverjum degi sem leggja á borð og segja okkur hvað er í matinn, síðan finna þeir málhljóðið sitt og við syngjum saman lagið þeirra. 

Í hverri viku erum við með málhljóð vikunnar, það hljóð vinnum við markvisst með í Lubbastund og yfir vikuna. Til að byrja með þá er hlustað á lagið fyrir það hljóð og sungið það með börnunum, en eftir því sem börnin eldast þá bætist við það sem gert er með hverju hljóði. Með elstu börnunum æfum við hljóðið, lesum söguna sem fylgir því, syngjum lagið, gerum táknið sem það á, skoðum hljóðakassann, staðsetjum Lubba á landakortinu og förum í leiki. Þá lesum við saman bækur, hver bók fær sitt Lubbabein sem hengt er upp á vegg og þannig söfnum við beinum fyrir Lubba.  Reglulega tökum við síðan lestrarátak í samvinnu við heimilin þar sem börnin koma með bein að heiman fyrir hvert skipti sem lesið er heima. 

Við á Kirkjugerði erum afskaplega stolt af þeirri viðurkenningu sem felst í því að taka þátt í þessu námskeiði.  Við förum spennt inn í veturinn að halda áfram að þróa Lubbastarfið okkar og vinnum nú að því að tengja það við verkefnið „snemmbær stuðningur í hnotskurn“ sem allir leikskólar Vestmannaeyjabæjar taka þátt í. 

 

Málhljóð vikunnar.

 

 

Ása og Salmína á námskeiðinu

 

Afmælisdagatal Lubba.

Lestrarátak með foreldrum.  Öll beinin sem söfnuðust á einni deild.

 

Ása með sýnikennslu á innstimplun barnanna

 

Útikennsla með Lubba.

Unnið með hljóðið L á yngri deild.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search