Í ár eru 148 ár síðan fyrsta Þjóðhátíðin okkar var haldin
Undanfarin tvö ár hefur þurft að aflýsa hátíðinni vegna heimsfaraldurs og það er því óvenju mikil eftirvænting og alveg sérstök tilfinning fyrir Þjóðhátíðinni í ár. Uppsöfnuð þjóðhátíðarþörf! Við fundum öll hvað mikið vantaði inn í sumarið okkar, já eiginlega bara lífið okkar, þessi tvö ár sem hátíðin ver ekki haldin.
Einmitt þetta – þessi langa saga og hefð og þessi órofa tenging við fortíð okkar og þá sem á undan fóru hér í Eyjum – leggur okkur ríkar skyldur á herðar. Við þurfum að hlúa að þessari miklu menningarperlu sem Þjóðhátíðin er. Við erum óendanlega stolt af þessari menningarsöglegu gullkistu. Við virðum sögu hennar og svipmót; hefðir og venjur. Við virðum kynslóðirnar sem héldu þessa hátíð á undan okkur; syngjum sömu lögin og ömmur okkar og afar og borðum meira að segja svipað bakkelsi! Þetta er það sem gerir þessa hátíð að einstakri upplifun. Hátíðin hefur þroskast og dafnað, tilhlökkunin er mikil hjá okkur heimafólki og gestum; að geta mætt í Dalinn og upplifað þessa einstöku hátíð eftir tveggja ára hlé.
Í þjóðhátíðarvikunni er mikil stemming og nóg að gera hjá öllum við að undirbúna, tjöldunina og „búsetuna“ í Dalnum. Rifja upp minningar frá fyrri hátíðum og hlusta á þau fjölmörgu frábæru þjóðhátíðarlög sem til eru og við þekkjum svo vel. Svo er hún auðvitað skemmtilegur hluti af okkar tímatali í Eyjum svo eitthvað sé nefnt; hlutirnir gerast ýmist fyrir eða eftir Þjóðhátíð.
Fyrstu minningarbrotin mín af Þjóðhátíð eru tengd Tjörninni, setningunni, kaffinu í Dalnum, nýsaumuðum þjóðhátíðarfötum, samveru með vinum og fjölskyldu og lyktinni í tjaldinu þegar rignir – sem reyndar er mjög sjaldan! Ein fyrsta minningin er frá því að ég var 6 ára og við vorum að labba inn í Dal á setninguna. Ég var í nýjum heimasaumuðum skokk og ég man hvað mér fannst ég fín. Og ég man að ég hugsaði að Þjóðhátíðin væri svolítið eins og jólin; allir spenntir og glaðir og mamma saumaði á okkur ný föt.
Við sem búum í Eyjum og þeir sem hafa tengingar til Eyja þekkjum öll sögu Þjóðhátíðar og mikilvægi hennar og flest eigum við ómetanlegar minningar tengdar hátíðinni. Samvera fjölskyldunnar þegar kynslóðir koma saman njóta þess að vera í Dalnum. Varðveitum þessa menningarperlu og minningarnar og höldum áfram að skapa nýjar.
Við sjáumst hress í Herjólfsdal „ þó sumarið líði allt of fljótt þá lifir að eilífu þessi Eyjanótt“.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja

