Loksins komin langþráð bongóblíða

Ísfisktogarinn Smáey VE landaði fullfermi eða 70 tonnum í Vestmannaeyjum síðast liðin þriðjudag og kom aftur inn í morgun með rúmlega 30 tonn.

Síldarvinnslan.is ræddi við Egil Guðna Guðnason stýrimann og spurði hvernig veiðar hefðu gengið. „Það verður að segjast að veiðarnar gengu vel. Í fyrri túrnum vorum við í Breiðamerkurdýpinu og uppistaða aflans þar var ufsi og ýsa. Við vorum þá fjóra sólarhringa á veiðum og fyrri tvo sólarhringana var veðrið hundleiðinlegt  en síðan kom loksins langþráð bongóblíða sem hefur ríkt síðan. Það er svo gríðarlegur munur að vinna í góðu veðri, það verður allt svo mikið einfaldara og þægilegra. Í seinni túrnum vorum við einungis að veiðum í einn og hálfan sólarhring og þá var fiskað í Háfadýpinu. Aflinn var 32 tonn og uppistaðan var karfi. Á þessu sést greinilega að það er búið að vera hörkufiskirí,“ segir Egill Guðni.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is