Fyrsti kúnninn mætti í Löngulág í morgun þar sem ný aðstaða hefur verið útbúin fyrir þjónustu dýralækna. Dýralæknaþjónusta Suðurlands tók þar á móti dýrum til aðhlynningar og eftirlits í dag mánudag. En þau hafa reynt að koma reglulega til Eyja undanfarin ár en hafa þó ekki komið í hátt í átta mánuði sökum aðstöðuleysis. En nú er aðstaðan klár og þau því mætt. Það er Vestmannaeyjabær sem lánar húsnæðið og hefur græjað það í samvinnu við nýstofnað Dýravinafélag Vestmannaeyja. Þóra Gísladóttir, formaður félagsins, segir að félagið ætli nú að reyna að sjá til þess að dýralæknaþjónusta verði í boði hér a.m.k. einu sinni í mánuði.
Kristín Halldórsdóttir eigandi fyrsta kúnnans í nýju aðstöðunni, hundsins Bósa, sagðist vera í skýjunum að aðstaðan sé loks orðin klár og dýralæknaþjónusta verði í boði hér reglulega. Hundurinn Bósi var hinsvegar ekki jafn ánægður með framtakið.


