Mótsstjórn Íslandsmótsins í golfi 2022 tilkynnti rétt í þessu að lokaumferð mótsins yrði felld niður þar sem að Vestmannaeyjavöllur er óleikfær.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og Kristján Þór Einarsson, GM eru því Íslandsmeistarar í golfi 2022.
Daníel Ingi Sigurjónsson endar því efstur Eyjamanna, jafn í 16. sæti. Sigurbergur Sveinsson sem átti frábæran lokahring í gær endar jafn í því 19. Vestmannaeyjameistarinn Örlygur Helgi Grímsson endar jafn í því 21.

