Lokahóf KFS fór fram á Canton síðastliðinn laugardag en liðið endaði í 3. sæti í sínum riðli í sumar og komst ekki í umspil um sæti í 3. deild að ári. Þeir slógu metsigur þegar þeir spiluðu gegn Kóngunum en markatalan þar endaði 19-0. Eyþór Daði Kjartansson fæddur 2000 fékk viðurkenningu sem efnilegasti leikmaðurinn og Tómas Bent Magnússon sá besti. Hann er vel að því kominn, miklar framfarir í sumar og byrjaður að leika með mfl. ÍBV. Markakóngur sumarsins var Ásgeir Elíasson en hann skoraði 13 mörk.
Laugardagur 28. janúar 2023