Lokahóf ÍBV í handbolta fór fram í kvöld – óvænt bónorð – myndir

Það var líf og fjör í Kiwanis fyrr í kvöld þegar handknattleiksdeild ÍBV hélt lokahóf meistaraflokkanna.

Dagskrá kvöldsins var með nokkuð hefðbundnum hætti þar sem má nefna verðlaunaafhendingu, heiðrun og skemmtiatriði leikmanna.

Einsi Kaldi sá um matinn og var mikil ánægja með réttina.

Boðið upp á nokkra rétti sem voru:

  • Burrata ostur með basiliku, tómötum, ólífuolíu og salti
  • Kóngarækjur með hvítlauk og chili majó
  • Nauta Carpaccio með klettasalati, parmesan, pekanhnetum og granateplum
  • Spínat og osta Cannelloni með parmaskinku, spínati, svepparagú og ostasósu.

Veislustjóri kvöldsins var fyrrverandi leikmaður liðsins og formaður handknattleiksdeildar ÍBV, Grétar Þór Eyþórsson.

Óvænt atriði var þegar að kærasti Birnu Berg steig á svið og bað hennar, við mikinn gleðifögnuð.

Grímur Hergeirsson aðstoðarþjálfari hefur ákveðið að þjálfa ekki á næsta tímabili og var hann heiðraður í kvöld.

Veitt voru fern verðlaun fyrir keppnistímabilið 2021-22 en það voru verðlaun fyrir mestu framfarir, ÍBV-ara, besta leikmann og Fréttabikarinn.

Verðlaunahafar voru eftirfarandi:

Meistaraflokkur karla:

  • Mestu framfarir – Arnór Viðarsson
  • ÍBV-ari  – Björn Viðar Björnsson
  • Besti leikmaður – Rúnar Kárason
  • Fréttabikarinn – Elmar Erlingsson

Meistaraflokkur kvenna: 

  • Mestu framfarir – Tara Sól Úranusdóttir
  • ÍBV-ari  – Ólöf María Stefánsdóttir
  • Besti leikmaður – Sunna Jónsdóttir
  • Fréttabikarinn – Sara Dröfn Ríkharðsdóttir (hún var ekki á staðnum til þess að taka á móti viðurkenningunni)

Tígull óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju.

Sunna Jónsdóttir – besti leikmaður ÍBV kvenna

Tara Sól – mestu framfarir.

Tara Sól, Sunna og Ólöf María

Rúnar, Björn Viðar og Arnór.

 

Björn Viðar Björnsson.

Arnór Viðarsson

Elmar Erlingsson með Fréttabikarinn.

Grímur Hergeirsson og Grétar Þór Eyþórsson.

Claes kærasti Birnu Berg bað hennar á lokahófinu.

Hún sagði JÁ!

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search