28.04.2020
Börn og reiðhjól
Lögreglan í Vestmannaeyjum bendir á nýtt ákvæði umferðarlaga um börn og reiðjól. Börn yngri en 9 ára mega ekki fara ein síns liðs um gatnakerfið ef þau þurfa að vera á akbrautum. Hjóli börn yngri en 9 ára á milli staða, verða þau að komast leiðar sinnar eftir gangstígum, gangstéttum og gangbrautum og þá er æskilegt að þau reiði hjól yfir gangbrautir. Akbrautir eru bannsvæði, nema undir eftirliti þeirra eldri.
Foreldrar bera að sálfsögðu ábyrgð á börnum sínum og verða að meta hæfni þeirra til að hjóla og hvort þeim sé treystandi til að vera ein á hjóli óháð aldri.
Ákvæði umferðarlaga sem tók gildi 1. janúar 2020 er svohljóðandi:
44. gr. Börn og reiðhjól.
Barn yngra en níu ára má ekki hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð hefur 15 ára aldri.
Hjólreiðamaður sem náð hefur 15 ára aldri má reiða börn yngri en sjö ára, enda séu þeim ætluð sérstök sæti og þannig um búið að ekki stafi hætta af hjólteinunum.
Einnig má sjá fyrri frétt þar sem Grunnskóli Vestmannaeyja gaf út tilkynningu: Reglur um reiðhjólanotkun í GRV