31.07.2020
Í ljósi breyttra reglna um sóttvarnir sem tóku gildi á hádegi 31. júlí 2020 og gilda til og með 13. ágúst 2020 vill lögreglan í Vestmannaeyjum benda á þau atriði sem þessar hertu reglur fela í sér:
• Takmörkun á fjölda sem kemur saman miðast við 100 einstaklinga. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin.
• Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi verði viðhöfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.
• Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga er krafist notkunar andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu ættu að uppfylla kröfur sem settar eru fram í leiðbeiningum sóttvarnalæknis.
• Vinnustaðir, opinberar byggingar, verslanir og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi skipuleggi starfsemi sína í samræmi við ofangreint og tryggi að ekki séu fleiri en 100 einstaklingar í sama rými og að í minni rýmum séu ekki fleiri en svo að hægt sé að tryggja 2 metra fjarlægð milli einstaklinga.
• Verslanir, opinberar byggingar og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi tryggi aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa, sinni vel þrifum og sótthreinsun yfirborða eins oft og unnt er og minni almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir með merkingum og skiltum.
• Sundlaugar og veitingastaðir tryggi að gestir geti haft 2 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjöldatakmörkun í samræmi við stærð hvers rýmis.
• Sóttvarnalæknir leggur til að starfsemi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sameiginlegan búnað s.s. íþróttastarf, líkamsræktarstöðvar, spilakassar og spilasalir geri hlé á starfsemi eða sótthreinsi slíkan búnað milli notenda.
• Sóttvarnalæknir leggur til að söfn, skemmtistaðir og aðrir opinberir staðir geri hlé á starfsemi sé ekki hægt að tryggja að farið sé eftir fjöldatakmörkun eða að bil milli ótengdra aðila sé yfir 2 metrum.
• Opnunartími skemmti- og vínveitingastaða verður áfram til kl. 23:00.
Þá vill lögreglan minna fólk á að ná sér í smitrakningarappið Rakning C-19 og auðvelda þannig smitrakningarteyminu starf sitt.
Einnig er rétt að minna þá á sem finna fyrir flensueinkennum að vera heima og hafa samband við heilsugæslu til að fara í sýnatöku.