Vestmannaeyjabær auglýsti í síðasta mánuði lausar til umsóknar lóðir við Hvítingaveg 7-13 og Skólaveg 21c.
Þetta eru fjórar lóðir fyrir einbýlishús við Hvítingaveg og eina lóð fyrir einbýli eða tvíbýli á reit bakvið Alþýðuhús.
Eftirfarandi verð var sett á lóðirnar:
- Skólavegur 21c, samtals 2 m.kr.
- Hvítingavegur 7 og 9, samtals 5 m.kr..
- Hvítingavegur 11 og 13, samtals 4 m.kr.
Í gær var málið tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs. Í fundargerð kemur fram að umsóknir um lóðirnar hafi verið eftirfarandi:
Hvítingavegur 7:
- Helgi Bragason og Þóra Hallgrímsdóttir
- Sigurjón Ingvarsson og Ágústa Árnadóttir
- Sigurgeir Sævaldsson og Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir
- Halldór Ingi Guðnason og Sigrún Arna Gunnarsdóttir
- Geirfuglasker ehf.
Hvítingavegur 9:
- Sigurgeir Sævaldsson og Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir
- Geirfuglasker ehf.
Skólavegur 21C:
- Þröstur Bjarnhéðinsson Johnsen og Áslaug Rut Áslaugsdóttir
Engar umsóknir bárust fyrir lóðir að Hvítingavegi 11 og 13.
Fulltrúi sýslumanns, Sæunn Magnúsdóttir, dregur um lóð að Hvítingavegi 7.
Niðurstöður eru eftirfarandi.
Hvítingavegur 7
Dregið út nr. 1
- Sigurgeir Sævaldsson og Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir
Til vara
- Sigurjón Ingvarsson og Ágústa Árnadóttir.
Á öðrum lóðum var útdráttur ekki nauðsynlegur.
Hvítingavegur 9
- Geirfuglasker ehf.
Skólavegur 21C
- Þröstur Bjarnhéðinsson Johnsen og Áslaug Rut Áslaugsdóttir.
Ráðið samþykkir að úthluta lóðunum sbr. Vinnureglur við úthlutun byggingarlóða hjá Vestmannaeyjabæ.

