Miðvikudagur 7. júní 2023

Loðnutorfur loksins fundnar út af Hornströndum og Húnaflóa

22.01.2020

Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum. Leitarleiðangur þriggja skipa undir forystu hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sá torfur norður af Hornströndum og Húnaflóa. 

„Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ sagði Birkir Bárðarson leiðangursstjóri í samtali við fréttastofu Vísis nú um miðjan dag en Árni Friðriksson var þá að koma í höfn á Ísafirði. 

„Við sáum eitthvað af loðnu vestur af Kolbeinseyjarhrygg,“ sagði fiskifræðingurinn en loðna sást á svæði um það bil þrjátíu mílur vestur af Kolbeinseyjarhrygg og að Kögurgrunni. Þar vestur af er ís á dreif. 

Birkir sagði þetta mestu loðnuna sem þeir hefðu séð til þessa í leiðangrinum og fyrstu eiginlegu loðnutorfurnar. Hann taldi samt ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni. Staðan væri óbreytt en spyrja þyrfti að leikslokum.

„Við erum að leggja að á Ísafirði, komnir í var. Það er orðið óvinnandi hérna úti,“ sagði Birkir og gerði ráð fyrir að þeir þyrftu að bíða af sér veðrið næstu tvo sólarhringa. Veðurútlitið væri þannig að vart yrði farið út aftur fyrr en á föstudag. 

Þá yrði haldið áfram að kanna Vestfjarðamið vestur fyrir Víkurál í þessari umferð. Í febrúar væri svo stefnt að því að fara í annan leiðangur. 

Fylgjast má með leitinni á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar.

Greint er frá þessu inn á visir.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is