Á Facebooksíðu Vinnslustöðvarinnar er færsla um gang mála hjá Gullbergi VE á loðnuveiðum sem við fengum að láni til að deila hér með lesendum Tíguls:
Loðnan gengur nú hratt vestur eftir suðurströnd landsins og var loðnuflotinn í gær á svæðinu milli Kötlutanga og Alviðru.
Gullberg var á loðnumiðunum í gær og lagði af stað til Eyja undir kvöldið með um 840 tonn af fallegri loðnu sem sem var byrjað að frysta strax í síðastliðna nótt.







