Föstudagur 1. desember 2023

Ljósopið – Kíkt í einstakt safn Figga á Hól

Gísli Friðrik Jesson, Figgi á Hól í Vestmannaeyjum sem fæddist 14. maí 1906 og lést 3.september 1992 kom víða við á lífsleiðinni.

Er einn af hornsteinum Vestmannaeyja eins og þær eru í dag. Þrátt fyrir annir á svo mörgum sviðum gaf hann sér tíma til að taka ljósmyndir. Eftir hann liggja myndir af bæjarlífinu, náttúrunni, þjóðhátíð, bátum og fleiru. Safn hans er ómetanlegt og fáum við tækifæri til að kíkja á það á laugardaginn þegar síðasta og þrettánda sýningin í sýningarröðinni Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt verður í Einarsstofu. Þar mætir tengdasonur hans, Ingi Tómas Björnsson og sýnir eigin myndir og myndir tengdapabba.

„Ég er að hamast við tína til myndir frá Figga, annars slags myndir, af því sem ekki er að finna svo víða. Samt skemmtilegar myndir og sumar þeirra ekki verið sýndar áður,“ segir Ingi Tómas og myndirnar ná yfir langt tímabil.

„Ég er með filmur frá því hann var peyi en þær elstu sem ég sýni núna eru frá 1923 þegar sund var kennt í köldum sjónum í höfninni. Þarna eru nokkrar myndir af honum en oftast var Figgi á bak við myndavélina. Þessar myndir af honum eru okkur dýrmætar í dag og kannski áminning til stafrænu kynslóðarinnar; hvar verða myndir sem teknar eru í dag eftir 100 ár?“
sagði Ingi Tómas.

Það verður gaman að sjá þá leiða saman hesta sína, Inga Tómas og Figga á Hól í Einarsstofu kl. 13.00 á laugardaginn þó í óeiginlegri merkingu sé.

Ótúrlegur ferill Friðrik var forstöðumaður Náttúrugripasafnsins í fjöldamörg ár, íþróttakennari, kennari og ljósmyndari. Er hann lést tók tengdasonur hans, Kristján Egilsson, við forstöðu safnsins. Hann tók fjölda mynda í Eyjum. Afreksmaður í íþróttum og margfaldur Íslandsmeistari.

Einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Týs 1921 og lengi í stjórn þess og varð síðar heiðursfélagi þess. Hann starfaði einnig með sameiningarfélaginu KV og íþróttaráði því sem stjórn ÍSÍ setti á laggirnar 1928. Fyrir þessi störf hlaut Friðrik þjónustumerki og síðar heiðursorðu ÍSÍ. Stjórn FRÍ sæmdi hann garpsmerki fyrir afrek í frjálsum íþróttum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is