Ljósin tendruð á jólatrénu á Stakkagerðistúni

Vegna takmarkana er enn á ný ekki hægt að hafa hefðbundna athöfn við tendrun jólaljósanna á trénu okkar.

Kveikt verður á jólatrénu á Stakkó föstudaginn 26. nóvember kl 17:00.

Nokkrir meðlimir Lúðrasveitar Vestmannaeyja munu spila tvö jólalög og Arna Huld Sigurðardóttir, formaður fræðsluráðs mun segja nokkur orð. 

Ungur drengur fæddur á jóladag, Christian Leó Gunnarsson ætlar svo að kveikja á ljósunum á trénu.

Þeir sem vilja fylgjast með þessum stutta viðburði á Stakkó vinsamlega gætið að eigin sóttvörnum og virðið þær takmarkanir sem eru í gildi.

Flestar verslanir eru með opið til kl 22:00 á svörtum föstudegi og til kl 15:00/16:00 á laugardag og bjóða afslætti vegna svarts föstudags. Mælum með að skoða jólatréð um helgina og kíkja í búðir.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is