Þriðjudagur 17. nóvember 2026

Ljósin lífga upp á í myrkrinu

28.12.2020

Við fengum hana Önnu Lilju Sigurðardóttir til að svara nokkrum spurningum um hennar jólahefðir og lofaði hún okkur að deila með ykkur.

Nafn, aldur og fjölskylda?  Anna Lilja Sigurðardóttir, 50 ára, gift og ég á tvær dætur.

Ertu mikið jólabarn? Já, já. Mér finnst þessi tími mjög notalegur. Ljósin lífga upp á í myrkrinu og ég er með kveikt á kertum alla daga. Ég fer á tónleika og elska matinn sem fylgir jólunum. Og svo er maður auðvitað meira með fjölskyldu og vinum. 

Fóru jólaljósin fyrr upp í ár en í fyrra? Já, aðeins.

Skreytir þú heimilið mikið? Bara svona passlega mikið, helst í eldhúsinu, enda er maður mikið þar á aðventunni. 

Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólunum? Árið 1994 fórum við fjölskyldan ásamt Sigga og ömmu á Blá til Kanaríeyja um jól og áramót. Það var alveg frábært. Við rifjum þessi jól oft upp. Svo var ég skiptinemi í USA þegar ég var 17 ára og þau jól voru eftirminnileg. Heyrði í einum flugelda um áramótin og komandi af Illugagötunni þá var það mjög sérstakt. 

Hvað er ómissandi á jólunum? 

Góður matur, fjölskyldan og vinirnir.

Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina? Get ekki neitað því að áramótin og Þrettándinn eru mitt uppáhald.  

Bakar þú fyrir jólin og hvað þá helst? Já, lagköku og smákökur helst. 

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Bara misjafnt. Þegar ég finn síðustu gjöfina. 

Hvenær setjið þið upp jólatré? Við klárum það um næstu helgi. Við erum alltaf með lifandi tré sem við sækjum okkur upp í sumarbústað og það passar fínt að setja það upp í kringum 20. des. 

Eftirminnilegasta jólagjöfin. Ferðin til Kanaríeyja um árið var jólagjöf okkar systkina það árið.

Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Á aðfangadag, þegar ég kem heim eftir möndlugrautinn sem við fjölskyldan borðum saman í hádeginu, búin að fara smá rúnt með pakka og þá fer ég að huga að matnum og njóta þess að gera allt klárt.  

Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? Nei. En, við systkinin fórum með pabba á sínum tíma þegar mamma var að syngja með kirkjukórnum. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search