Miðvikudagur 27. september 2023
Súkkulaðikaka

Litla syndin ljúfa

Gómsæt súkkulaðikaka sem tilvalin er í eftirrétt.

Innihald:

140g smjör, og meira til að smyrja formin

140g 70% Nóa Síríus Súkkulaði

2 egg

3 eggjarauður

140g flórsykur

60g hveiti

Aðferð

Hitið ofninn í 220° (ekki nota blástur). 

Smyrjið 6 lítil soufflé-form eða bolla vel með smjöri (Ef notuð eru annars konar form er ráð að prófa að baka eina synd til að bökunartíminn passi örugglega). 

Setjið smjör og súkkulaði í pott og bræðið við vægan hita. 

Takið af hitanum um leið og smjörið er bráðið og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið. 

Þeytið egg og eggjarauður í skál og setjið svo flórsykurinn út í og þeytið vel. 

Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og þeytið á meðan og hrærið að lokum hveitinu saman við.  Skiptið deiginu jafnt í formin (rúmlega 1 dl í hvert form) og gætið þess að fylla þau ekki alveg. Setjið formin á plötu eða í ofnskúffu og bakið kökurnar í 11-12 mínútur (án blásturs). 

Ef deigið hefur verið geymt í kæli þá er bökunartíminn 13-14 mín (jafnvel 15 mín ef það var í formunum og í kæli). 

Takið þær út og látið kólna í 3 mínútur. 

Rennið hnífsblaði í kringum kökurnar til að losa betur um þær og hvolfið þeim á diska. 

Sigtið e.t.v. svolítinn flórsykur yfir og berið kökurnar fram t.d með hindberja- eða vanillusósu og e.t.v. berjum eða öðrum ávöxtum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is