Þriðjudagur 5. desember 2023

Litaflokkað viðvörunarkerfi fyrir skólastarf

08.12.2020

Markmið nýs litaflokkunarkerfis fyrir skólastarf er að auka fyrirsjáanleika og einfalda skipulag sóttvarnaráðstafana í skóla- og frístundastarfi hér á landi.

Litakóðinn tekur mið af almennri litaflokkun almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, „Covid-19 Viðvörunarkerfi“ sem kynnt hefur verið.

Viðvörunarkerfi fyrir skóla- og frístundastarf snertir alla nemendur, kennara, starfsfólk og foreldra barna og ungmenna á öllum skólastigum, alls um 120 þúsund manns. Í því má finna yfirlit yfir útfærslur og áhrif sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum og hversu langan fyrirvara má gera ráð fyrir vegna breytinga á þeim.

Kerfið er hugsað til viðmiðunar og undirbúnings fyrir skólasamfélagið en það er ekki lagalega bindandi; gildandi reglugerðir heilbrigðisráðherra munu áfram stýra sóttvarnaráðstöfunum í skólum. Almennar samkomutakmarkanir gilda nema annað sé sérstaklega tekið fram. Gert er ráð fyrir því að breytingar á lit eða stigi varúðarráðstafana verði tilkynntar með reglugerðarbreytingum.

Litaflokkunin er unnin í samráði við almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, sóttvarnaryfirvöld og fulltrúa allra skólastiga. Byrjað verður að vinna eftir henni frá og með næstu áramótum.

COVID-19 viðvörunarkerfi fyrir skóla- og frístundastarf, 7. desember 2020

Greint er frá þessu inn á vef Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is