Í dag verður sjávarréttahátíðin Matey sett með formlegum hætti í Safnahúsinu.
Dagskráin stendur frá klukkan 17:00 – 18:30. Meðal dagskráviðburða er Listasýningin ,,Konur í sjávarútvegi”
Valin eru málverk í eigu Vestmannaeyjabæjar sem sýna konur í sjávarútvegi. Það má velta því fyrir sér hvort konur í þessari atvinnugrein hafi verið viðfangsefni listmálara í gegnum tíðina. Hefur störfum kvenna í sjávarútvegi verið gefinn nægilegur gaumur í listsköpun, eða hefur verið lögð meiri áhersla á störf karla hjá listamönnum?
Í verkum mínum hef ég aðallega verið að vinna með konur og vísa þá verk mín til þeirra fjölmörgu kvenna, sem í gegnum aldirnar hafa unnið sín mikilvægu störf í hljóði – segja má að um sé að ræða óð til allra þeirra nafnlausu kvenna sem sköpuðu söguna, listina og lífið. Þessar konur tengdu lífskeðju kynslóðanna saman, lifðu sem nafnlausar hversdagshetjur og eru gleymdar flestu fólki í dag, segir Gíslína Dögg Bjarkardóttir.
Myndin heitir „Þú hefur aldrei farið“ og er titillinn fenginn úr ljóði eftir Ólínu Andrésdóttir (1858-1935). Titillinn vísar annars vegar til konunnar og vinnu hennar, sem ekki hefur alltaf verið metin af verðleikum, en er samt sem áður á sama tíma ómentanleg fyrir samfélagið. Hins vegar vísar titillinn til þorsksins, sem einnig hefur fylgt þjóðinni í gegnum árin, hefur verið lífgjafi þjóðarinnar og þó hér hafi ríkt ýmiskonar góðæri og einhverjir hafi verið sannfærðir um að lífsviðurværi þjóðarinnar snúist ýmist um banka eða ferðamenn, þá er það þorskurinn sem alltaf hefur verið til staðar.
Grafíkverkið “Þú hefur aldrei farið”
Djúpþrykk
Myndflötur 12x12cm
Pappírsstærð 20x20cm
Pappír Fabriano,rosaspina hvítur 220 gr
Myndin er í 25 tölusettum eintökum.


