Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs tilkynnti um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2022 nú í morgun, á sumardaginn fyrsta. En það er Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja sem hlaut nafnbótina að þessu sinni.
Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja var stofnað 2. mars 2019 og er tilgangur félagsins að sameina, efla og virkja listsköpun og gera listsköpun einstaklinga sýnilegri í samfélaginu, bæði í Vestmannaeyjum sem og á fastalandinu.
Þann 1. október 2019 fékk félagið aðstöðu í Hvíta húsinu við Strandveg 50 og eru 67 listamenn í félaginu. Í byrjun var hluta þriðju hæð hússins úthlutað til félagsins en fljótlega varð ljóst að töluvert meiri eftirspurn var eftir vinnustofum fyrir listafólk í Vestmannaeyjum. Í dag eru leigðar út 33 vinnustofur hjá félaginu ýmist til einstaklinga í sér rými eða í sameiginlegu rými.
Félagið hefur staðið fyrir fjölda sýninga einstaklinga auk samsýninga og hefur auk þess staðið fyrir námskeiðahaldi fyrir nemendur Grunnskóla Vestmannaeyja á smiðjudögum undanfarin tvö ár og hefur verkefnið tekist vel. Þá hafa félagar í félaginu staðið fyrir sumarnámskeiðum fyrir börn og ungmenni.
Ágætlega var mætt á athöfnina sem fram fór í Eldheimum. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög og krakkar úr 8. bekk Grunnskólans í Vestmannaeyjum, þau Heiðmar Magnússon og Magdalena Jónasdóttir, sem tóku þátt í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var á Hellu á síðasta ári lásu ljóð.
Skólalúðrasveitin hóf þó athöfnina að venju með nokkum léttum og sumarlegum þungarokkslögum.
















