Lina Cardell gekk nú í vikunni til liðs við ÍBV en hún kemur á lánssamningi út tímabilið frá sænska úrvalsdeildarliðinu IK Savehof, þar sem hún hefur leikið undanfarin tímabil.
Lina er sænskur örvhentur hornamaður, fædd árið 2001 og hefur leikið með yngri landsliðum Svíþjóðar.
Í dag fékkst leikheimild fyrir Linu og hún verður í leikmannahópi ÍBV sem mætir Fram á morgun í 4. umferð Olis deildar kvenna.
Við bjóðum Linu hjartanlega velkomna til ÍBV og hlökkum til samstarfsins!
Áfram ÍBV