Mánudagur 9. nóvember 2026

Lilja Óskarsdóttir talar á Aglowfundi í kvöld

Aglowfundur verður í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld, miðvikudaginn 4. nóvember, kl. 19:30. Gestur kvöldsins er Lilja Óskarsdóttir, sem kemur og talar til kvennanna.

Lilja er hjúkrunarfræðingur, kristniboði og kennari og hefur starfað víða. Hún hefur kynnt sér sögu Hvítasunnukirkjunnar vel, en í ár eru 100 ár frá því að fyrsta Hvítasunnukirkjan á Íslandi var stofnuð, og það var einmitt í Vestmannaeyjum.

Kvöldið hefst með hressingu og samfélagi. Síðan verður sungið og beðið saman áður en hlýtt verður á boðskap kvöldsins. Allar konur eru velkomnar.

Á samverunni í október sögðu nokkrar konur frá helgarferð í Skálholtsbúðir, þar sem vel var tekið á móti hópnum með góðum aðbúnaði, kennslu og samfélagi.

Næst kemur Aglow saman á jólafundi 2. desember.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search