Líkfundur á Sólheimasandi

16.01.2020

Kl. 11:55 í morgun fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að lík konu hafi fundist á Sólheimasandi, skammt frá göngustíg að flugvélarflakinu þar.

Lögreglumenn fóru þegar á vettvang og í framhaldi af skoðun þeirra á vettvangi var kölluð björgunarsveit til frekari leitar. Um kl. 14:00 fannst lík karlmanns skammt frá þeim stað sem konan lá.

Dánarorsök liggur ekki fyrir og verður ekki ljós fyrr en að lokinni krufningu á líkunum.   Vísbendingar eru um að um sé að ræða par sem var að ferðast saman og hefur sendiráð viðkomandi ríkis verið upplýst um stöðuna.

Bíll sem talinn er í leigu parsins er á bílastæði við Sólheimasand og vitað er að hann fór um Hvolsvöll á austurleið kl. 14:55 þann 13. janúar sl.

Tæknideildar- og rannsóknarlögreglumenn eru við vinnu á vettvangi og er ekki að vænta upplýsinga af hálfu lögreglunnar að sinni.

Greint er frá þessu á vef sunnlenska.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is