Fjölskylduhátíð Landsbankans var haldin í Vestmannaeyjum á Goslokahátíð sl. laugardag og sem fyrr var margt um manninn, sólin skein og mikið fjör. Grillaðar voru SS-pylsur, Skólahreysti mætti á staðinn, Sproti heilsaði upp á krakkana spiluð var lifandi tónlist. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mættu líka og voru bara nokkuð ánægðir með hvernig til tókst, enda allt gert í samráði við almannavarnir. Hlífðarglerin góðu fengu að njóta sín úti í blíðunni svo gestir færu ekki sjálfir að handfjatla sósubrúsana með tilheyrandi smithættu. Myndirnar tala sínu máli.
Ljósmyndari: Ísleifur Arnar Vignisson