Almennt verður heimilaður hámarksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarnahólfa heimil á öllum skólastigum, líka í háskólum.
- Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks.
- Aðeins þarf að bera grímur ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna.
- Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir.
Þetta eru meginbreytingarnar á takmörkun skólastarfs sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Gildistími nýrrar reglugerðar um takmarkanir á skólastarfi er til og með 30. apríl nk.
Líkt og verið hefur gilda engar fjöldatakmarkanir um nemendur í leikskólum, þeir eru undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun. Í grunnskólum verður heimilt að hafa 150 nemendur í hverju rými en líkt og áður eru nemendur í 1. til 10. bekk undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun.
Reglur tónlistarskóla munu taka mið af sambærilegum skólastigum.
Viðburðir tengdir félagsstarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum og í tónlistarskólum verða heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda og nálægðartakmörkunum sem gilda á viðkomandi skólastigi.
Viðburðir þar sem gestir sitja:
Heimilt verður að halda viðburði í skólum í samræmi við almennar reglur um samkomutakmarkanir.