Leikskólarnir opna kl. 10 föstudaginn 26. mars vegna hertra sóttvarnarreglna sem tóku gildi á miðnætti þann 25. mars.
Starfsfólk leikskólanna fær þá svigrúm til að ljúka við að undirbúa leikskólastarfið í samræmi við nýju reglurnar.
Leikskólarnir munu starfa eftir bestu getu með þeim takmörkunum sem hljótast af reglugerðinni en skv. henni mega 10 fullorðnir einstaklingar vera samankomnir í hverju rými.
Foreldrar eru beðnir um að nota grímu og gæta að 2 metra reglunni í fataherbergjum leikskólanna og staldra þar við eins stutt og kostur er.

