Fimmtudagur 8. október 2026

Leikfélagið frumsýndi Tíu litla Eyjapeyja í gærkvöldi

Flottur hópur leikara úr leikfélagi Vestmannaeyja stóð sig með prýði í gærkvöldi á frumsýningu Leikfélags Vestmannaeyja á leikritinu Tíu litlir Eyjapeyjar eftir glæpasagnahöfundinn Agatha Christie, í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Þarna er á ferðinni misreyndur leikarahópur þar sem margir hverjir að stíga sín fyrstu spor á leiksviðinu og gerðu það með stakri prýði.

Í lok sýningar voru Alexander Páll Salberg og Viktor Rittmüller gerðir að heiðursfélögum í L.V. fyrir þeirra framlag til Leikfélagsins á undanförnum árum. Eins voru hjónin Magnús Bragason og Adda Sigurðardóttir heiðruð fyrir sinn stuðning við Leikfélagið í gegnum tíðina.  Unnur Guðgeirsdóttir, formaður LV, sagði í ræðu sinni þetta vera síðasta leikritið í hennar formannstíð og hlaut hún mikið lófatak fyrir sitt framlag. Þá gerði stjórn Leikfélagsins hana og eiginmann hennar Ragnar Gíslasyn, sem smíðað hefur flest allar sviðsmyndir leikrita síðustu ára, einnig að heiðursfélögum.  Íris Róbersdóttir, bæjarstóri fékk þá orðið og þakkaði, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, Unni einnig fyrir sitt framlag til menningarsviðsins í Eyjum og afhenti henni blóm og þakkaði gott starf.

Næstu sýningar á Tíu litlum Eyjapeyjum eru í kvöld, föstudag og á morgun, laugardag kl. 20.30. Miðapantanir eru í síma 852-1940.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search