Mánudagur 16. nóvember 2026

Leikfélag vestmannaeyja tekur við rekstri Eyjabíó

Nú á næstu dögum mun Leikfélag Vestmannaeyja taka við rekstri Eyjabíó

Tígull tók létt spjall við hann Snorra sem er rekstrarstjóri

Nafn: Snorri Rúnarsson
Aldur: 18 ára

Hvað gerir þú í leikhúsinu:
Ég er varaformaður, tæknimaður og kem til með að hafa yfirumsjón með bíóinu.

Hvað er framundan?
Það er ýmislegt framundan, leikfélagið er að taka við rekstri EyjaBíós og einnig eru framkvæmdir í gangi í búningaaðstöðu félagsin. Síðan erum við farin að huga að sýningu í haust.

Það eru góðar fréttir að LV ætli að taka við rekstri Eyjabíó

Hvernig sjáið þið þetta fyrir ykkur?

Þetta verður með nokkuð svipuðu formi og þetta hefur verið, allar nýjustu myndirnar verða sýndar og síðan erum við alltaf opin fyrir áskorunum/óskum.

Hvað reiknið þið með mörgum sýningum í mánuði?
Við reiknum með að jafnaði 7 sýningum um hverja helgi en það fer allt eftir myndaúrvali og aðsókn.

Hvaða bíómynd verður fyrsta myndin í sýningu?

Það er góð spurning, það eru margar nýjar spennandi myndir væntanlegar.

Verðið þið með einhverjar breytingar?

Nei, eða sára litlar, en erum opin fyrir öllum hugmyndum!

Hvað rúmar bíósalurinn marga?

Það eru sæti fyrir 109 manns en það verða að sjálfsögðu einhverjar takmarkanir að minnsta kosti til að byrja með útaf sóttvarnarlögum og reglum.

Hvenær verður fyrsta sýningin?
Við stefnum á að byrja fyrstu helgina í júní með fyrirvara um að allt gangi vel fyrir sig

Eitthvað sem þið viljið koma á framfæri?
Endilega komið í bíó og ef einhverjir hafa áhuga á að koma í leikhúsið, hvort sem það er vinna baksviðs í búningum, förðun og hári, sviðsvinnu eða tæknivinnu eða á sviði eru allir velkomnir og við tökum vel á móti öllum sem vilja taka þátt í starfinu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search