Þetta er seinasta sýningarhelgin í bili vegna aðstæðna í samfélaginu. Laus sæti í kvöld en örfá laus á morgun.
Leikfélag Vestmannaeyja er með sýningu í kvöld föstudag og laugardagskvöld. Hefjast báðar sýningarnar kl. 20:30.
Hægt er að nálgast miða með því að hringja í 852-1940
3. sýning – föstudaginn 12. nóv kl. 20:30
4. sýning – laugardaginn 13. nóv kl. 20:30
Bryndís Guðjónsdóttir er 19 ára eyjamær sem að hefur verið í leikfélaginu síðan 2014. Þetta er fimmta sýningin sem að hún tekur þátt í en það hefðu verið sex sýningar ef covid hefði ekki skollið á heiminn. Hennar uppáhaldslög í sýningunni eru I want to break free og Proud Mary.
