Við fengum leikara úr Ávaxtakörfunni til að svara nokkrum spurningum í síðasta Tígli:
Bryndís Guðjónsdóttir
(Eva Appelsína)
Hvað ertu búin að vera lengi í LV?
Byrjaði árið 2014.
Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?
Þetta er verk númer 8 sem ég tek þátt í.
Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?
Hún er einfaldlega bara fegurst, flottust og fínust.
Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?
Okkur finnst báðum gaman að vera skvísur, ég gæti samt aldrei eytt svona miklum tíma fyrir framan spegilinn.
Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?
Er að vinna í Tvistinum líka, allur aukatími fer svo bara í félagslífið eða svefn.
Hvaða app notaru mest í símanum?
Spotify.
Hver er fyrirmyndin?
Mamma mín er fyrirmyndin mín.
Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?
Hlusta eiginlega bara á bland af því besta, dálítið af öllu bara. Svo kann ég alltaf að meta gott hlaðvarp og þá er morðcastið í uppáhaldi hjá mér.
(Litla Límóna)
Ásta María Helgadóttir
Hvað ertu búin að vera lengi í LV?
Þetta er fyrsta árið mitt.
Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?
Þetta er fyrsta verkið mitt.
Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?
Minn karakter leggur fyrst Mæju og Geddu í einelti en svo þegar hún sér að það er rangt og allir eru vinir þá tekur hún þátt í því að vera vinur allra.
Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?
Já, við erum báðar mjög fjörugar og orkumiklar.
Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?
Ýmislegt t.d. skólinn, handbolta-
æfingar, fermingafræðsla, KFUM/KFUK og vera með vinum.
Hvaða app notaru mest í símanum?
Tiktok, snapchat og Blockin’ Color.
Hver er fyrirmyndin?
Amma Ásta María.
Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?
ABBA og The Jackson 5.
María Fönn Frostadóttir
(Palla Pera)
Hvað ertu búin að vera lengi í LV?
Ég byrjaði fyrir 5 árum, 2017 þegar við sýndum Klaufa og Kóngsdætur.
Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?
Ég hef tekið þátt í fimm verkum.
Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?
Palla Pera er stuðbolti og fer ekkert án Podda.
Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?
Palla er orkumikil og kemur oft með misheppnaða brandara sem henni finnst sjálfri vera sprenghlægilegir. Ég tengi.
Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera í Leikfélaginu?
Ég er í fullu námi í framhaldsskólanum. Ég er líka í fullu söngnámi og hljómsveit.
Hvaða app notaru mest í símanum? Líklega nota ég mest Snapchat.
Hver er fyrirmyndin?
Andy Biersack.
Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?
Rokk.
Immi Ananas
Albert Snær Tórshamar
Hvað ertu búin að vera lengi í LV?
Ég er búinn að vera síðan 2016.
Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?
Ég hef tekið þátt í 10 verkum, held ég.
Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?
Hann er frekur, stjórnmálum, snöggreiðist,
sjálfselskur og bara svolítið óöruggur ef maður
lítur vel á hegðun hans.
Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn
og hvað þá?
Stórt skap bara haha.
Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera
í Leikfélaginu?
Ég er í múraranámi og er að vinna.
Hvaða app notaru mest í símanum?
Snapchat held ég eða Instagram.
Hver er fyrirmyndin?
Usss það eru nokkrir. Ætli að ég segi ekki að
það sé pabbi og Eyþór Ingi.
Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?
Gamla góða rokkið bara.
Valgerður Elín Sigmarsdóttir
(Gedda Gulrót)
Hvað ertu búin að vera lengi í LV?
Síðan í Klaufum og kóngsdætrum árið 2017.
Hvað hefuru tekið þátt í mörgum verkum?
Já, ég hef leikið í Klaufum, Línu, Síðan eru liðin mörg ár, tvær sýningar í 10 litlum Eyjapeyjum og núna Ávaxtakörfuni, en ég vann bakvið tjöldin í Latabæ og 10 litlum Eyjapeyjum.
Hvað einkennir karakterinn sem að þú leikur?
Ég leik Geddu gulrót, grænmeti sem að kemur í ávaxtakörfuna. Gedda er hugrökk, jákvæð, glaðlind, gott efni í leiðtoga og með mikla réttlætiskennd og seiglu.
Er eitthvað sem þú tengir þig við karakterinn og hvað þá?
Jaá, ég er kannski ekki persóna í barnaleikriti en bý alveg yfir sumum sömu einkennum og Gedda.
Hvað ertu annars að brasa fyrir utan að vera
í Leikfélaginu?
Það má eiginlega finna mig í leikhúsinu allan daginn alla daga vikunar á þessu leiktímabili afþví ég er líka að vinna í búningum, propsi og leikmynd. En annars er ég í fullri vinnu á Hótel Vestmannaeyjar.
Hvaða app notaru mest í símanum?
Messenger.
Hver er fyrirmyndin?
Bara svona samblanda af mörgum í mínu lífi.
Hvaða tónlist hlustaru mest á þessa dagana?
Soul, rokk og 70s tónlist.






