ÍBV átti að mæta liði Fram á útivelli í dag kl 14:30. Tígull heyrði í Vilmari framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV rétt í þessu og staðfesti hann það að vegna samgangna var leiknum frestað til morguns en ekki er komin tími á leikinn á morgun. Tígull mun uppfæra fréttina um leið og nýr tími verður ákveðinn.
Einungis var búið að leika þrjár umferðir af mótinu þegar að sóttvarnarreglur voru hertar og bann var sett á kappleiki.
ÍBV liðið er í toppsætinu fyrir leik morgundagsins en Fram er í því þriðja.
Ekki eru leyfðir áhorfendur á leikjunum enn sem komið er.
Leikir dagsins í Olís-deild kvenna: