Laugardagur 17. október 2026

Laxey stígur næsta skref – ný seiðastöð

Laxey hefur samið við AKVA group um hönnun og afhendingu nýrrar seiðastöðvar í Vestmannaeyjum, svokallaðrar Seiðastöðvar II. Með samningnum er stigið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu landeldis félagsins í Eyjum.

Byggt á traustu samstarfi

Samstarf Laxeyjar og AKVA group á sér nokkurra ára sögu, en félögin gerðu fyrst samning árið 2022 um uppbyggingu fyrstu RAS-seiðastöðvarinnar. Sú stöð er nú í fullum rekstri og hefur skilað góðum árangri, bæði hvað varðar afköst og gæði. Þar hefur þegar tekist að framleiða nokkra hópa af hágæða seiðum sem styðja við áframeldi félagsins.

Stór aukning í framleiðslugetu

Nýja seiðastöðin verður byggð upp í áföngum. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir framleiðslu upp á um 5 milljón seiði á ári, en með frekari uppbyggingu gæti sú tala farið upp í allt að 15 milljón seiði árlega.

Hönnun stöðvarinnar byggir á sömu tækni og notuð hefur verið í fyrri stöð félagsins, sem hefur reynst vel í rekstri. Það skapar aukinn fyrirsjáanleika og dregur úr áhættu í framkvæmdum.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í sumar, að því gefnu að fjármögnun gangi eftir, og að starfsemi hefjist á síðari hluta árs 2027.

Uppbyggingin er liður í frekari þróun landeldis í Vestmannaeyjum, þar sem lögð er áhersla á stöðuga framleiðslu og ábyrga nýtingu auðlinda.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search