Frá borholusjó til matarsalts
Laxey og Saltey hafa undirritað samstarfssamning um nýtingu á sjó sem er hliðarafurð úr starfsemi Laxey til saltframleiðslu í Vestmannaeyjum. Samningurinn felur jafnframt í sér að starfsemi Saltey verður til húsa í seiðastöð Laxey, þar sem sjórinn verður fullunninn í hágæða matarsalt.
Eitt ferli, tvær afurðir
Samstarfið byggir á því að Saltey mun nýta þann sjó sem fellur til við framleiðslu ferskvatns í seiðastöð Laxey. Við framleiðslu ferskvatns er sjór borholu leiddur í gegnum RO-kerfi þar sem ferskvatnið er aðskilið frá. Sjórinn, sem áður féll að mestu til sem vannýtt hliðarafurð ferlisins, verður nú nýttur áfram af Saltey til framleiðslu á hágæða flögusalti.
Samstarfið tengir saman tvö fjölskyldurekin fyrirtæki í Vestmannaeyjum og er gott dæmi um hvernig aukin nýting auðlinda getur skapað verðmæti á fleiri en einum stað. Úr hreinum borholusjó verður annars vegar til ferskvatn fyrir seiðaframleiðslu Laxey og hins vegar hráefni til saltframleiðslu hjá Saltey.
„Við erum mjög ánægð með að hefja þetta samstarf við Saltey. Með því finnum við leið til að nýta betur þær afurðir sem verða til í okkar starfsemi á sama tíma og við styðjum við verðmætasköpun og framleiðslu í heimabyggð,“ segir Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Laxey.
Verðmætasköpun og uppbygging í heimabyggð
Aukin eftirspurn hjá Saltey hefur skapað þörf til stækkunar og fellur þetta samstarf vel að framtíðaráformum fyrirtækisins. Samhliða því að tryggja aðgengi að góðu hráefni mun Saltey einnig hafa starfsemi sína í seiðastöð Laxey, þar sem vinnsla og fullvinnsla saltsins mun fara fram.
„Þetta samstarf gerir okkur kleift að mæta aukinni eftirspurn eftir vörum okkar með sjálfbærum hætti og byggir á hráefni sem á uppruna sinn í hreinum borholusjó frá Vestmannaeyjum. Við sjáum mikil tækifæri í samstarfinu og hlökkum til að vinna með Laxey á komandi árum,“ segir Leifur Jóhannesson, einn eigenda Saltey.
Með samningnum styrkir Laxey enn frekar áherslu sína á hringrásarhugsun og bætta nýtingu auðlinda, á meðan Saltey fær aðgang að staðbundnu hráefni sem fellur vel að framleiðslu fyrirtækisins á hágæða flögusalti. Samstarfið styður jafnframt við áframhaldandi uppbyggingu, nýsköpun og verðmætasköpun í Vestmannaeyjum.


