Laugardagur 17. október 2026

LAXEY og Marel skrifa undir samning um vinnslu- og hugbúnað fyrir landeldisstöð í Vestmanneyjum

LAXEY og Marel hafa skrifað undir samning um afhendingu á Marel vinnslu- og hugbúnaði fyrir væntanlegt sláturhús LAXEY fyrir landeldislax. Með samningnum tekur LAXEY stórt skref en fyrirtækið stefnir á að framleiða 32 þúsund tonn af laxi á ári. Byggð hefur verið hátæknivædd seiðastöð sem er komin í fulla starfsemi og senn verður fyrsta áfanga áframeldisins í Viðlagafjöru fullkláraður. Fyrsti seiðaskammtur var einmitt fluttur í áframeldið í lok síðasta árs og er fyrsta slátrun áætluð haustið 2025. JBT Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir fiskvinnslu.

Fjárfesting LAXEY í vinnslu- og hugbúnaði
Í landeldi, einni mest vaxandi grein matvælaiðnaðarins, skiptir öflugur búnaður miklu máli til að uppfylla vaxandi kröfur markaðarins um sjálfbærni og hámarksnýtingu.

Með nýju lausninni frá Marel fær LAXEY bæði nákvæma stærðarflokkun og tengingu við stafrænar lausnir Marel sem hámarka rekstrarhagkvæmni.

Samningurinn snýr að Smartline-flokkara og AXIN hugbúnaði Marel sem er notaður í fiskvinnslum um allan heim. Með AXIN hugbúnaðinum getur starfsfólk LAXEY stýrt
vinnsluferlinu eftir upplýsingum sem kerfið aflar í rauntíma. Gerir hugbúnaðurinn starfsfólkinu þannig kleift að haga framleiðslunni á sem hagkvæmastan máta og
jafnframt að bregðast skjótt við vandamálum sem kunna að koma upp.

Lausnin mun auka nákvæmni í stærðarflokkun og styðja við rekjanleika, gæði og framleiðsluhagkvæmni en þetta eru allt lykilatriði í stefnu LAXEY um að vera leiðandi í sjálfbærum landeldislausnum.

“Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa skýra yfirsýn yfir vinnsluna, góðan rekjanleika og geta þannig tryggt hagkvæmni í gegnum öll stig vinnslunnar”. Kristmann Kristmannsson verkefnastjóri vinnslu og innkaupa hjá LAXEY.

Aukin tækni, meiri verðmæti
Smartline-flokkarinn frá Marel veitir LAXEY möguleika á að stærðarflokka lax með mikilli nákvæmni og hraða. Með AXIN hugbúnaðinum er tryggt að öll gögn um
framleiðslu séu rekjanleg í rauntíma. Þetta gefur fyrirtækinu innsýn til að hámarka nýtingu og tryggja matvælaöryggi.

„Viðskiptavinir okkar vilja áreiðanleg gögn, hágæða afurðir og tækni sem getur spáð fyrir um stöðu framleiðslulínunnar,“ segir Skúli Sigurðsson, framkvæmdastjóri fisks hjá Marel. „Við erum stolt af því að vinna með LAXEY í þessu verkefni og styðja við þeirra vegferð við að setja ný viðmið í fiskeldi.“

Um Marel
Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu. Í byrjun þessa árs sameinuðust JBT og Marel: sjá hér

Um LAXEY
LAXEY stefnir á byggingu fiskeldisstöðvar á landi sem getur framleitt 32.000 tonn af laxi á ári. LAXEY er með seiðastöð í rekstri í Friðarhöfn sem notast við RAS-kerfi sem hámarkar endurnýtingu á vatni og er fyrsta stöð sinnar tegundar á Íslandi.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search