Laugardagur 17. október 2026

LAXEY og Baader undirrita samning um vinnslubúnað fyrir landeldisstöð í Vestamannaeyjum.

LAXEY og Baader á Íslandi hafa gert með sér samning um afhendingu á vinnslubúnaði fyrir væntanlegt sláturhús LAXEY fyrir landeldislax. Baader, sem er alþjóðlegt fyrirtæki í þróun og framleiðslu á tækjabúnaði fyrir laxavinnslu, er þekkt fyrir lausnir sem hannaðar eru með gæði framleiðslu og dýravelferð í huga. Þessi nálgun gerir Baader að góðum samstarfsaðila fyrir LAXEY, sem leggur áherslu á ábyrgðarfulla matvælaframleiðslu og uppfyllir um leið kröfur viðskiptavina um allan heim.

Samningurinn markar tímamót fyrir bæði félög, sem sjá fram á að styrkja stöðu sína á ört vaxandi markaði landeldis á Íslandi. Fyrir LAXEY er samstarfið mikilvægt í að tryggja búnað og framleiðslutækni, sem mun styðja við áætlanir þess um hágæða afurðir fyrir alþjóðlegan markað.

„Við erum spennt fyrir þessu samstarfi við Baader, sem er í fararbroddi þegar kemur að tæknilausnum fyrir sjávarútveg. Þessi samningur getur lagt grunninn að árangursríku samstarfi og við væntum þess að þetta verði upphafið að farsælu sambandi sem mun stuðla að því að efla íslenskan landeldisiðnað“ segir Kristmann Kristmannsson, verkefnisstjóri vinnslu og innkaupa.

Karl Ásgeirsson, sölustjóri Baader á Íslandi, bætir við: „Við erum stolt af því að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni með LAXEY. Okkar búnaður mun tryggja að þeir geti staðið undir þeim ströngu kröfum sem gerðar eru til gæða í framleiðslu á alþjóðlegum markaði.“

Á myndinni sjást Kristmann Kristmannsson, verkefnisstjóri vinnslu og innkaupa hjá LAXEY, og Daði Pálsson, framkvæmdarstjóri LAXEY, innsigla samninginn með Karli Ásgeirssyni, sölustjóra Baader á Íslandi.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search