Fimmtudagur 28. september 2023
Viðlagafjara austur á hrauni

LAXEY í Vestmannaeyjum lýkur 6 milljarða hlutafjáraukningu

– Landeldi á laxi með 32 þúsund tonna framleiðslugetu
– Seiðaframleiðsla hefst í nóvember 2023, fyrsta slátrun 2025
– Verkefnið skapar um 100 bein og óbein störf í Eyjum

Vestmannaeyjum 14.09. 2023.

Landeldisfyrirtækið LAXEY, áður Icelandic Land Farmed Salmon,
í Vestmannaeyjum hefur lokið hlutafjáraukningu að andvirði 6 milljarða króna til íslenskra fjárfesta.
LAXEY hefur hafið uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum, annars vegar seiðaeldisstöð í
Friðarhöfn og hins vegar áframeldisstöð í Viðlagafjöru. Gert er ráð fyrir að áframeldisstöðin muni
framleiða um 32.000 tonn af laxi árið 2031, en nú eru framleidd á Íslandi um tvö þúsund tonn af
landeldislaxi.
Áframeldisstöðin verður byggð í sex jafnstórum áföngum, en stefnt er að því að fyrsti áfangi verði
tilbúinn um mitt ár 2024 og að fyrsta slátrun fari fram síðla árs 2025. Fyrsti áfangi verður einn og sér
rekstrarlega sjálfbær en hver viðbótaráfangi mun auka hagkvæmni framleiðslunnar, með lægri
fjárfestingarútgjöldum og rekstrarkostnaði á hvert framleitt kíló af laxi.

Einstakar aðstæður í Vestmannaeyjum
Skilyrði til laxeldis á landi í Vestmannaeyjum eru afar góð og aðstæður hagstæðar. Notast er við
endurnýtingarkerfi á vatni í áframeldi, þar sem um 65% af sjónum eru endurnýtt en 35% eru freskur
jarðsjór sem dælt er upp úr borholum á svæðinu. Vatnshitinn er einkar hagstæður til laxeldis.
Í Vestmannaeyjum er til staðar gríðarleg þekking á matvælaframleiðslu og útflutningi sjávarfangs.
Innviðir eru sterkir, samfélagið samheldið og mannauðurinn afar öflugur. Mikil áhersla hefur verið lögð á
að vanda allan undirbúning og ítarlegt mat hefur verið unnið á umhverfisáhrifum verkefnisins. Matið
hefur verið kynnt ítarlega fyrir hlutaðeigandi aðilum í Vestmannaeyjum og hlotið góðar viðtökur.
Sveitarfélagið hefur sýnt verkefninu mikinn stuðning enda um mikilvæga atvinnuuppbyggingu að ræða.
Þannig munu yfir 50 manns starfa hjá fyrirtækinu þegar það hefur náð fullri framleiðslugetu, auk fjölda
afleiddra starfa allan ársins hring.

Verðmætasköpun á grænum grunni
Spurn eftir eldislaxi hefir farið stöðugt vaxandi í heiminum, sem skýrist m.a. af áherslu á heilbrigt líferni,
stækkandi millistétt og stóraukinni áherslu á sjálfbærni í matvælaframleiðslu. LAXEY mun byggja
framleiðslu sína á grænum gildum, þar sem notast er við 100% endurnýjanlega orku og úrgangur verður
unninn til áburðarframleiðslu. Að auki verður áhersla lögð á að laxinn verði fluttur sjóleiðina á markað til
að minnka kolefnisspor.

Öflugir kjölfestufjárfestar í Vestmannaeyjum
Fyrrum eigendur fyrirtækjanna ÓS ehf. og LEO Seafood ehf. hafa tekið þátt í verkefninu frá upphafi og
verða kjölfestufjárfestar í LAXEY. Fjölskyldan hefur stundað sjávarútveg í Vestmannaeyjum í 75 ár og býr
yfir verðmætri reynslu og þekkingu á matvælaframleiðslu, ásamt afar sterku orðspori.

Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður í LAXEY:
„Við erum afar ánægð að þessum áfanga sé náð og það traust sem fjárfestar sýna LAXEY. Við höfum
unnið að þessu verkefni frá árinu 2019 og sjáum mikil tækifæri í framleiðslu á íslenskum landeldislaxi í
Vestmannaeyjum og sölu á alþjóðlegum mörkuðum. Í Vestmannaeyjum eru kjöraðstæður til að
framleiða hágæða fiskafurðir, mikil þekking og öflugur mannauður – sem er lykilatriði í þessum geira.“

MAR Advisors hafa unnið að fjármálaráðgjöf fyrir LAXEY undanfarna 18 mánuði og voru ráðgjafar við
nýafstaðna hlutafjáraukningu. MAR Advisors veita fyrirtækjum og fagfjárfestum í alþjóðlegum
sjávarútvegi, orku og innviðum sérhæfða ráðgjöf.

Nú hefst næsta skref í leit að samstarfs- og fjármögnunaraðilum á norrænum og alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Í því skyni hefur LAXEY fengið norska fjárfestingarbankann Arctic Securities til liðs
við sig sem umsjónaraðila, auk þess sem Mar Advisors verða félaginu áfram til ráðgjafar varðandi
uppbyggingu til framtíðar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is