Laugardagur 17. október 2026

Laxey – bjartasta vonin á Hátíðarkvöldi Þjóðmála

Laxey fékk verðlaun sem „Bjartasta vonin“ á Hátíðarkvöldi Þjóðmála, sem haldið var í Hvalasafninu 20. nóvember síðastliðinn Hörður Orri Grettisson, fjármálastjóri Laxeyjar, veitti verðlaununum viðtöku. Greint er frá þessu á facebooksíðu Þjóðmál. Hér er tilkyningin frá þeim í heild sinni.
Nú standa yfir þar í bæ umfangsmestu fjárfestingar sögunnar og stefnir í að innan fárra ára muni útflutningsverðmæti fyrirtækisins nema um 50 milljörðum króna á ári hverju.
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með vexti Laxeyjar á liðnum árum og það verður ekki síður áhugavert að fylgjast með félaginu til lengri tíma. Eftir að hafa selt útgerðarfélögin Ós og Leo Seafood fjárfestu Sigurjón Óskarsson og fjölskylda hans í frekari atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun í Vestmannaeyjum. Þannig var lagður grunnur að fiskeldisfyrirtækinu Laxey. Félagið hefur notið tiltrúar innlendra og erlendra fjárfesta og nýlega lokið fyrstu slátrun á fullvaxta laxi. Laxey mun auka enn við þá miklu verðmætasköpun sem á sér stað í Vestmannaeyjum, landinu öllu til hagsbóta.
Með uppbyggingunni hafa forsvarsmenn Laxeyjar sömuleiðis sigrast á náttúrulegum hindrunum sem fyrirtækið býr við í Vestmannaeyjum. Það á bæði við um aðgengi að vatni, rafmagni og landrými. Það er síst af öllu sjálfsagt að þessi nýja grunnstoð atvinnulífsins í Vestamannaeyjum skuli nú verða að veruleika.
Hörður Orri og Óskar stoltir af sýnu fyrirtæki. En þeir mættu fyrir hönd Laxey.
Á foríðumynd með Herði Orra er fulltrúi Þjóðmála að afhenda Herði viðurkenninguna. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search