Tígli barst kvörtun yfir lausagangi á rollum enn á ný. Í þetta sinn höfðu skepnurnar gætt sér á sumarblómum og velt um koll blómapottum og skrauti sem á sér margra ára sögu hjá viðkomandi.
Tígull skorar á Brynjar Ólafsson framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, að taka betur á þessum lausagangi sem hefur fengið að líðast í mörg mörg ár og virðist sem yfirleitt sé um sömu rollu eigendur að eiga. Hafa þessir aðilar einhvern tíma fengið sekt? Fá þeir áminningu ? Við skulum senda þessa fyrirspurn á Brynjar og birta hér þegar þau svör koma.
Hér má sá fyrir og eftir mynd, ekki nóg með að þær hafi étið öll sumarblómin þá gerður þær einnig þarfir sínar á stéttina.



