Kisi

Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri frá 1. janúar 2025

Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri frá 1. janúar 2025. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti tillögu þar að lútandi á fundi í dag, eftir langar umræður.

Nú eru mjög skiptar skoðanir hér í Vestmannaeyjum um hvort eigi að banna lausagöngu katta líkt og er með hunda.

Hvað finnst þér?

Það er á vef Akureyri.net sem er greint frá þessu fyrst.

Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi var málshefjandi og lagði fram tillögu þess efnis að samþykktir um kattahald yrðu endurskoðaðar en við umræður kom í ljós að meirihluti bæjarstjórnar vildi ganga enn lengra en „málamiðlunartillaga“ Evu Hrundar, eins og hún kallaði hana sjálf, gerði ráð fyrir. Svo fór að Eva Hrund lagði fram nýja tillögu sem samþykkt var af sjö bæjarfulltrúum. Fjórir voru á móti og lögðu fram bókun.

Tillaga Evu Hrundar, sem samþykkt var, hljóðar svo:

  • Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða samþykktir um kattahald í Akureyrarkaupstað. Verður þá með nýjum tillögum lausaganga katta ekki heimil en sett svokallað sólarlagsákvæði inn sem er þrjú ár. Lausaganga katta verður þá ekki heimil frá ársbyrjun 2025. Þá verði einnig settur umtalsverður meiri kraftur að í að framfylgja þeim samþykktum með sérstakri áherslu á ábyrgð eigenda, skráningarskyldu og fræðslu.
    Hilda Jana Gísladóttir lagði fram bókun fyrir sína hönd, Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur og Heimis Haraldssonar, en þau ásamt Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar, greiddu atkvæði gegn tillögu Evu Hrundar.

Bókunin sem Hilda Jana lagði fram er svona:

  • Við hörmum þá niðurstöðu bæjarstjórnar að banna alfarið frjálsa útivist hjá kisum. Bæjarfélagið hefur lítið sem ekkert gert til að framfylgja þeim samþykktum sem nú þegar eru í gildi né látið á það reyna að breyta samþykktum í þá veru að sem flestir geti vel við unað. Hægt hefði verið að stíga það skref að heimila ekki útivistina að næturlagi og yfir varptíma fugla. Mikilvægara hefði verið að leita lausna en að grípa til banns. Fyrst grípa á hins vegar til banns hefði verið eðlilegra að setja sólarlagsákvæði, þannig að þær kisur sem nú þegar eru útikisur fái að vera það út sinn líftíma.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is