Föstudagur 16. október 2026

Laufey á Bakka – Framkvæmdir hafnar

Þau mikilvægu og gleðilegu tímamót urðu í dag, mánudaginn 22.ágúst að framkvæmdir eru hafnar á Laufey Welcome Center á Bakka.

Í ársbyrjun 2022 var fjármögnun á þjónustumiðstöðinni Laufey tryggð með aðkomu langtímafjárfesta sem hafa mikla trú á verkefninu. Fyrsta stöðin, og sú mikilvægasta fyrir Vestmannaeyjar, mun rísa á Bakka.

Þessi ferill hefur verið langur og strangur, sér í lagi þar sem fjármögnunarferlið keyrði í fangið á Covid og allt viðskiptaumhverfi breyttist á svipstundu. Við fundum þó alltaf mikinn áhuga og velvilja í
Vestmannaeyjum, hjá almenningi, bæjarstjórn, stjórn Herjólfs, ferðamálasamtökunum og ber einnig að nefna Lífeyrissjóðs VE sem hvatti okkur áfram vitandi mætavel hvaða þýðingu svona segull og veiðikofi myndi gera fyrir bæjarfélagið og þar með þeirra sjóðsfélaga. Einlægur og auðsýndur áhugi fjölmiðla í Vestmannaeyjum á verkefninu hvatti okkur líka til dáða.

Við þökkum öllum þessum aðilum kærlega fyrir stuðninginn.

Jarðframkvæmdir og Landflutningar verða umtalsverðir í undirbúningi fyrir stórt bílaplan, öflugar hraðhleðslustöðvar og myndarlega byggingu, sem hefur tekið breytingum með betri þjónustu fyrir jafnt ferðamenn á Suðurlandi og Eyjamenn á öllu landinu, í huga. Vonir standa til að Laufey verði risinn og starfandi, með fána Vestmannaeyja blaktandi við hún, á 50.ára afmælisári eldgossins 1973 á Heimaey.

Teiknistofa TPZ í Vestmannaeyjum hefur tekið að sér gæðaeftirlit með jarðframkvæmdum næstu vikur og mánuði á Bakka og hefur þegar hafið störf.

Björgvin Björgvinsson frá teiknistofu TPZ, Ólafur Einarsson eigandi Þjótanda, Sveinn Waage og Davíð Halldórsson stjórnendur Laufeyjar.
Grafan að störfum í morgun 22.ágúst
Grafan að störfum í morgun 22.ágúst

 

 

 

 

 

 

 

 

Tölvuteikningar af lokahönnun Laufey Welcome Center á Bakka.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search