14.02.2020
Í gær skrifaði Lárus Garðar Long undir samning við Bethany College háskólann í Kansas fylkinu í Bandaríkjunum.
Lárus hefur verið einn af efnilegustu kylfingum klúbbsins um árabil og var hann klúbbmeistari á nýliðnu ári ásamt því að vera valinn kylfingur ársins 2019.
Tígull óskar Lárusi til hamingju og góðs gengis á komandi tímum.
Greint er frá þessu inn á facebooksíðu GV