Laugardagur 30. september 2023

Landsmót skólalúðrasveita í Eyjum blásið af

Núna um helgina 19.-21.maí stóð til að haldið yrði hér í eyjum landsmót AB skólahljómsveita (það eru yngri nemendur skólahljómsveita). Á morgun áttu að koma hér 700 börn ásamt rúmlega 100 kennurum og fararstjórum. Öll skipulagning hefur verið í samvinnu stjórnar Samtaka íslenskra skólalúðrasveita SÍSL og Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja og hefur gengið vel.

Gert var ráð fyrir að skipta hópnum í sjö hundrað manna lúðrasveitir. Var búið að fá inni í flestum sölum á eyjunni til að dæmið gæti gengið upp.

Einsi Kaldi var í startholunum með mat fyrir rúmlega 800 manns, Hallarbændur búnir að gera ráðstafanir í Höllinni svo hópurinn gæti matast þar og átt góða stund á laugardagskvöld. Listamenn höfðu verið fengnir til að skemmta börnunum bæði á meðan æfingum stóð og á kvöldskemmtun.

Gert var ráð fyrir gistingu í báðum grunnskólum, Safnaðarheimili og Tónlistarskólanum. Búið að skipuleggja afþreyingu í Sæheimum, Eldheimum og sundlauginni. Rútur frá Viking og lánssendibílar klárir og Herjólfur fullbókaður.

Í skipulagningunni kom vel í ljós hversu vel við búum að því hér í Eyjum að eiga reynsluna af skipulagningu viðburða sem þessa. Var gott að geta leitað til aðila sem séð hafa um skipulagningu íþróttamóta og var eftir því tekið hvernig röðun í gistingu og annað gekk vel upp.

Hvar sem komið var að í skipulagningu mótsins voru allir aðilar tilbúnir að aðstoða og leggja til sína reynslu og þekkingu.

Því miður búum við í þeim veruleika að vera háð duttlungum veðurguðanna og við það verður ekki ráðið. Því var mót helgarinnar slegið af í gær. Við elskum að búa hér, en vitum hvað því fylgir og það þýðir lítið að fárast yfir því, þegar veður og sjólag verður til þess að jafnvel bestu plön ganga ekki eftir.

Vissulega eru vonbrigðin mikil, svo ekki sé talað um hjá þeim ungu sálum sem sáu fram á bestu helgi lífsins. En eftir stendur þó ánægjan eftir góða samvinnu og hjálpsemi hvert sem litið var.

Þetta þýðir þó ekki að árar hafi verið lagðar í bát. Til stendur að finna mótinu nýja dagsetningu í lok sumars, eða snemma hausts. Skipulagið er klárt og þá er bara að setja í gang og vona að veður og vindar verði okkur hliðhollari.

Skólalúðrasveit Vestmannaeyja og stjórn SÍSL vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem aðstoðað hafa við skipulagningu mótsins á einn eða annan hátt.

 

F.h. Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja

Jarl Sigurgeirsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is