Föstudagur 13. nóvember 2026

Landsliðs stelpurnar í handbola mæta Grikkjum í dag

Kvenna landsliðið í handbola lék í gær sinn fyrsta leik í forkeppni HM sem fram fer í Skopje í Norður Makedóníu.

Jafnræði við með liðunum í upphafi leiks og þegar tíu mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 2 – 2. Íslenska liðið átti þá frábæran kafla og skoraði fimm mörk í röð og breytti stöðunni í 7 – 2 með marki frá fyrirliðanum Steinunni Björnsdóttir. Steinunn meiddist hinsvegar í skotinu og kom ekkert meira við sögu.

Heimakonur léku vel í lok fyrir hálfleiks, staðan í hálfleik var 11 – 8 Norður Makedóníu í vil.
Íslenska liðið byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og skoraði 5 mörk í röð og staðan orðin 13 – 12 fyrir Ísland. Liðin skiptust svo á að leiða leikinn þar til í stöðunni 15 – 15, þá sigu Norður-Makedónar framúr stelpunum okkar og að lokum endaði leikurinn með sjö marka tapa Íslands 24 – 17.

Mörk Íslands í kvöld skoruðu:
Rut Jónsdóttir 3, Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir 3, Lovísa Thompson 3, Sunna Jónsdóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 1, Birna Berg Haraldsdóttir 1, Thea Imani Sturludóttir 1, Ásdís Guðmundsdóttir 1 og Sigríður Hauksdóttir 1 mark.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 11 skot í leiknum.

Stelpurnar mæta Grikkjum í dag og hefst leikurinn 18:00 og verður honum streymt á RÚV.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search