Laugardagur 17. október 2026

Landað í lok kvótaárs

Vestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE hafa komið að landi með ágætan afla nú í lok kvótaársins. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við skipstjórana. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, upplýsti að Bergey hefði landað í Eyjum í gærmorgun. “Við vorum með rétt tæp 70 tonn og aflinn var mest þorskur. Við hófum túrinn í Meðallandsbugtinni og tókum þar tvo hol. Þá var haldið á Ingólfshöfðann en einungis eitt hol tekið þar. Þá lá leiðin í Berufjarðarálinn þar sem hafði verið ágæt veiði en hún fór minnkandi eftir að við komum. Veitt var í Berufjarðarálnum á meðan bjart var en farið út í kanta þegar dimmdi. Nú er verið að kveðja þetta kvótaár og nýtt að ganga í garð og á þessum tímamótum eru menn bara brattir,” sagði Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að landað hefði verið í Eyjum í morgun að loknum karfatúr. ”Við vorum með um 56 tonn og það var farið allvíða í túrnum. Það var byrjað í Sparisjóðnum, þaðan haldið á Belgableiðuna og síðan á Sneiðina og í Háfadýpið. Undir lokin var veitt í Reynisdýpinu og á Víkinni. Við lönduðum áður fullfermi í Grindavík á sunnudaginn. Þá var aflinn mest þorskur sem fékkst í Berufjarðarálnum þar sem var fínasta veiði. Nú er nýtt kvótaár að ganga í garð og auðvitað eru það alltaf ákveðin tímamót fyrir okkur,” sagði Birgir Þór.

 

 Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search