Nú fer senn að hausta og því tímabært að handboltanum sé kastað á ný. Það er því ráð að kynnast leikmönnum aðeins.
Olísdeild karla hefst hinsvegar nú seinnipart vikunnar. ÍBV situr hinsvegar hjá í fyrstu umferð þar sem strákarnir mæta Holon HC tvívegis um helgina í leik í Evrópukeppninni. Fyrri leikurinn var í gær laugardag en sá síðari í dag sunnudag kl. 16.00 báðir hér heima. Karlalið ÍBV á svo sinn fyrsta leik í Olís-deildinni föstudaginn 16. september gegn KA fyrir norðan en fyrsti heimaleikurinn verður fimmtudaginn 22. sept. þegar þeir taka á móti ÍR.


