Kvöldáætlun Herjólfs breytt vegna hækkandi ölduhæðar á morgun, og stefnir í siglingar til Þorlákshafnar á sunnudaginn, þar sem spáð er 5 metra ölduhæð.
Laugardagur 24.september:
Við viljum góðfúslega benda farþegum okkar sem ætla sér að ferðast með okkur á morgun laugardag er spáð hækkandi ölduhæð þegar líða tekur á kvöldið, en um kl. 21:00 annaðkvöld er gert ráð fyrir 3 metra ölduhæð við Landeyjahöfn.
Að því sögðu hefur verið ákveðið að seinnipartinn á morgun siglir Herjólfur eftirfarandi ferðir:
Frá Vestmannaeyjum kl. 17:00
Frá Landeyjahöfn kl. 20:45
Aðrar ferðir það kvöld falla úr áætlun, það er að segja kl. 19:30 og 22:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 18:15 og 23:15 frá Landeyjahöfn.
Ef gera þarf frekari breytingar á áætlun, þá gefum við það út um leið og það liggur fyrir.
Sunnudagur 25.september:
Á sunnudagsmorgun er spáð vestan 20 metrum á sekúndu og hátt í 5 metra ölduhæð í Landeyjahöfn, því er ansi líklegt að Herjólfur komi til með að sigla til Þorlákshafnar þann dag. Við gefum frá okkur frekari tilkynningu seinnipart laugardags varðandi siglingar á sunnudag.
Hvetjum við farþega til þess að bóka í öruggar ferðir sem flytjast sjálfkrafa milli hafna þennan dag og fylgjast vel með miðlum okkar.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.
Mynd – Heimir Hoffritz

