Kvennalið ÍBV spilaði gegn Þrótti í Laugardalnum í gær. Leiknum lauk með 2-0 sigri. Fyrra mark ÍBV skoraði Karlina Miksone á 20. mínútu eftir hornspyrnu sem Olga tók og fyrirliði ÍBV Fatma Kara innsiglaði sigurinn á 57. mínútu með fínu skoti. En hún átti frábæran leik í gær þar sem hún stjórnaði spilinu vel. Einnig átti markmaður ÍBV hún Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving góðan leik og átti góðar og mikilvægar vörslur.
Liðið situr nú í 4. sæti Pepsi Max deildarinnar eftir þennan sigur.
Næsti leikur liðsins er á miðvikudaginn, þegar liðið mætir Fylki í Árbænum.